Kvikmynd er miðill sem höfðar til flestra og einkum og sér í lagi ungu kynslóðarinnar. Það er því tilvalið að nota kvikmyndir við kennslu erlendra mála þar sem auðvelt er að þjálfa færniþættina fjóra tal, hlustun, lestur og ritun með hjálp kvikmynda. Við Þórey Einarsdóttir og Þórhildur Lárusdóttir höfum góða reynslu af því að nota kvikmyndir við enskukennslu. Við höfum samið og tekið saman verkefni með kvikmyndum til notkunar í enskukennslu og fengið til þess styrk frá menntamálaráðuneytinu. Sem reyndir kennarar vitum við að það er mjög þægilegt að fá tilbúin verkefni upp í hendurnar. Með þá reynslu að leiðarljósi höfum við sett þetta verkefni okkar út á Netið til þess að þeir kennarar sem hafa áhuga og aðstæður til geti kynnt sér þær hugmyndir sem við höfum byggt á og notað verkefnin okkar eins og þau koma fyrir, eða hluta af þeim eftir því sem þeim hentar hverju sinni. Það er ósk okkar og von að sem flestir geti nýtt sér þetta efni.

Samið og tekið saman af
Þóreyju Einarsdóttur, Menntaskólanum
við Hamrahlíð
og Þórhildi Lárusdóttur, Kvennaskólanum
í Reykjavík
© Elfa Eyþórsdóttir, 2002.