|
||||
|
|
Bókaútgáfan Iðunn hf. gaf út bókina Ensk og málfræði og æfingar nokkrum sinnum á árunum 1981-91 en nú er ekki lengur grundvöllur fyrir því að gefa hana út í óbreyttu formi. Í apríl síðastliðinn sá ég hins vegar að ég gæti sett hana óendurskoðaða inn á Internetið og gert flestar æfingarnar gagnvirkar. Ég þakka Adam Ásgeir Óskarssyni, Akureyri - netfang: adam@vma.is - fyrir að leyfa mér að nota CGI-forritin sín og form. Sömuleiðis þakka ég Bergljótu Njólu Jakobsdóttur fyrir að leyfa mér að nota áfram myndirnar úr bókinni. Ég hef unnið þetta verk kauplaust í frístundum mínum og hef engu viljað kosta til þess. Það má því finna ýmislegt ábótavant við verkið. Það leynast sjálfsagt ritvillur - og forritunarvillur - hér og þar og uppsetningin er ekki frumleg miðað við hvað þessi nýi miðill hefur upp á að bjóða en þetta er bara fyrsta atrennan mín. Gagnlegar ábendingar eru því vel þegnar. Reykjavík, í júní 1998 Enska málfræðin og gagnvirku æfingarnar hafa nú verið aðgengilegar á Internetinu í tæp fimm ár. Enska málfræðin hefur verið hýst á www.kvenno.is en gagnvirku æfingarnar á www.eva.ismennt.is sem mun brátt hverfa úr notkun. Ég hef því flutt æfingarnar yfir á vefþjón Kvennaskólans í Reykjavík - með dyggri aðstoð Ágústs Valgeirssonar sem sá um aðlögun þeirra úr Unix í Windows stýrikerfi. Ég kann honum bestu þakkir fyrir hana. Reykjavík, í febrúar 2003 |
|||
©1998 Sævar
Hilbertsson
Athugasemdir til shil@simnet.is
Síðast uppfærð
16.02.2003