Náms- og starfsráðgjöf
Náms- og starfsráðgjöf Kvennaskólans í Reykjavík
Náms- og starfsráðgjöf Kvennaskólans í Reykjavík veitir nemendum skólans margvíslegan stuðning á meðan á námi stendur og hefur það að markmiði að skapa hverjum nemenda sem bestar aðstæður í námi. Stuðningur felst m.a. í:
- Ráðgjöf um vinnubrögð í námi.
- Ráðgjöf vegna persónulegra mála um
- heimanámið
- prófkvíða
- þunglyndi
- samskiptavandamál
- námsleiða o.fl.
- Ráðgjöf og úrræði vegna fötlunar eða hömlunar (m.a. sérstofu í jóla og vorprófum).
- Ráðgjöf um námsval, kjörsvið, brautaskipti og fallhættu.
- Áhugasviðskönnunum.
- Upplýsingamiðlun.
Ráðgjöf um vinnubrögð í námi
Nám í framhaldsskóla gerir oft aðrar kröfur til nemenda en nám í grunnskóla. Meiri kröfur eru gerðar um sjálfstæði nemenda og eigið vinnuframlag. Nemendur þurfa því oft að endurskoða námsvenjur sínar og námstækni.
Persónuleg ráðgjöf
Náms- og starfsráðgjafi er trúnaðarmaður og málsvari nemenda og aðstoðar þá við lausn persónulegra vandamála sem hindra þá í námi. Náms- og starfsráðgjafi er bundinn þagnarskyldu um öll einkamál nemenda.
Ráðgjöf um námsval, t.d. val á kjörsviðum
Námsráðgjafi stuðlar að auknum skilningi nemenda á eigin stöðu og möguleikum í námi og starfi og þjálfar þá til sjálfsábyrgðar.
Upplýsingamiðlun
Náms- og starfsráðgjafi safnar og miðlar upplýsingum um nám og störf og sinnir tengslum við önnur skólastig og atvinnulíf.
Námskeið
Prófkvíðanámskeið
Styrkingarnámskeið
Vinnubrögð í námi
Viðtöl
Skrifstofur náms- og starfsráðgjafa eru á 2. hæð í Miðbæjarskóla í norður álmu
Viðtalstíma námsráðgjafa á Haustönn 2011 má sjá hér: Viðtöl
Hildigunnur Gunnarsdóttir
Beinn sími: 580-7618
Netfang: hildigunnurg@kvenno.is
Leit
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli