Innleiðing nýrra laga í Kvennaskólanum í Reykjavík
Kvennaskólinn í Reykjavík hefur verið valinn til að vera í fararbroddi við þróun framhaldsskólakerfisins vegna innleiðingar nýrra laga um framhaldsskóla. Unnið hefur verið að endurskoðun námsframboðs skólans undanfarna mánuði og ákveðið er að nám þeirra nemenda sem byrja í skólanum haustið 2009 verði í anda þessara laga.
Til að sjá upplýsingar um nám nemenda sem innrituðust haustið 2008 og fyrr er hægt að smella hér.
Nýjar leiðir fyrir nemendur sem innritast fyrir haustið 2009
- Skólinn starfrækir þrjár bóknámsbrautir til stúdentsprófs á sviði félags-, náttúru- og hugvísinda.
- Á félagsvísindabraut er lögð áhersla á almenna þekkingu í félagsvísindum auk þess sem nemendur sérhæfa sig í tveimur sérgreinum félagsvísinda.
- Á hugvísindabraut er hægt að sérhæfa sig í tungumálum, meðal annars 3. og 4. máli eða sleppa 4. máli og leggja þess í stað áherslu á menningarlæsi og umfjöllun um listir.
- Á náttúruvísindabraut er lögð áhersla á þekkingu í stærðfræði og náttúruvísindum.
- Stúdentsprófið verður 200 framhaldsskólaeiningar (fein).
- Skólinn starfar eftir bekkjakerfi.
- Námið er skipulagt þannig að nemendur geta lokið stúdentsprófi á 3-4 árum.
- Kjarninn á hverri braut er 155 fein og valið 45 fein.
- Sveigjanlegur námshraði. Nemendum gefst kostur á að taka valgrein, eina eða fleiri, á hverju námsári. Með því móti geta duglegir nemendur lokið námi á þremur árum. Hinir sem verða lengur, sem nemur önn eða ári, geta tekið minna árlega og bætt við sig valgreinum á fjórða árinu.
Lokamarkmið náms við skólann
Lokamarkmið brauta skólans er stúdentspróf.
Almenn lokamarkmið skólans eru að nemendur:
- séu undirbúnir fyrir virka þátttöku í lýðræðisþjóðfélagi
- búi yfir félagslegri og borgaralegri hæfni
- sýni frumkvæði og ábyrgð og hafi sjálfstraust
- búi yfir siðferðisvitund, víðsýni og umburðarlyndi
- hafi öðlast gagnrýna og skapandi hugsun
- geti beitt þeim vísindalegum vinnubrögðum sem kennd eru í framhaldsskóla
- geti notað þekkingu sína og færni til að vinna að margvíslegum verkefnum
- séu færir um að leita lausna í samvinnu við aðra
- hafi gott vald á upplýsingatækni
- hafi gott vald á tjáningu bæði í ræðu og riti
- kunni að njóta menningarlegra verðmæta
- hafi öðlast vitund og ábyrgð gagnvart umhverfi sínu
- séu vel undirbúnir fyrir frekara nám.
Lokamarkmið hverrar brautar eru að nemendur:
| á félagsvísindabraut | á náttúruvísindabraut | á hugvísindabraut |
|---|---|---|
| hafi góða almenna þekkingu á sviði samfélagsgreina | hafi góða almenna þekkingu á sviði stærðfræði, náttúru- og raunvísinda | hafi góða almenna þekkingu á sviði hugvísinda |
| geti greint einkenni og þróun samfélaga og geri sér grein fyrir mótunaröflum einstaklinga og hópa | séu færir um að beita vísindalegri hugsun og aðferðum við greiningu viðfangsefna, öflun upplýsinga, mælingar, mat, úrvinnslu og túlkun | séu færir um að beita fræðilegri hugsun og aðferðum við greiningu viðfangsefna, öflun upplýsinga, mat, úrvinnslu og túlkun |
| þekki meginstrauma menningar, trúar, uppeldis, stjórnmála og hagþróunar í fortíð og nútíð | geti fjallað um og tekið þátt í upplýstri umræðu um ýmis mál er tengjast samspili vísinda, tækni og samfélags | hafi náð tilskilinni færni í þeim erlendu tungumálum sem þeir hafa lagt stund á |
| geti tekið þátt í rökræðum um samfélagsleg efni | geti nýtt kunnáttu sína í náttúru- og raunvísindum í mögulegri framtíðarþróun | séu læsir á menningu og siði viðkomandi málsamfélaga og hafi þekkingu á sögu þeirra |
| hafi öðlast getu til að lesa og greina rannsóknarniðurstöður | séu vel undirbúnir fyrir frekara nám, einkum í náttúru- og raunvísindum, tæknigreinum og heilbrigðisvísindum. | séu vel undirbúnir fyrir frekara nám í hugvísindum og á öðrum sviðum fræða og lista. |
| séu vel undirbúnir fyrir frekara nám, einkum í félags- og hugvísindum. |
Kjarni
Skipulag kjarnans á brautum skólans er sem hér greinir:
| Námsgrein | Félagsvísindabraut | Hugvísindabraut | Náttúruvísindabraut |
|---|---|---|---|
| Íslenska | 22 fein | 27 fein | 22 fein |
| Stærðfræði | 10 fein | 10 fein | 25 fein |
| Danska/nor/sæn | 5 fein | 10 fein | 5 fein |
| Enska | 15 fein | 25 fein | 15 fein |
| Þriðja mál | 15 fein | 25 fein | 15 fein |
| Félagsfræði | 11 fein | 6 fein | 6 fein |
| Saga | 15 fein | 10 fein | 10 fein |
| Sálfræði | 5 fein | ||
| Uppeldisfræði | 5 fein | ||
| Fjölmiðlafræði | 5 fein | ||
| Náttúruvísindi | 15 fein | 15 fein | |
| Eðlisfræði | 10 fein | ||
| Efnafræði | 15 fein | ||
| Jarðfræði | 10 fein | ||
| Líffræði | 10 fein | ||
| Íþróttir | 6 fein | 6 fein | 6 fein |
| Lífsleikni | 3 fein | 3 fein | 3 fein |
| Lokaverkefni 1) | 3 fein | 3 fein | 3 fein |
| Valkvæður kjarni 2) | 20 fein | 15 fein | |
| Samtals | 155 fein | 155 fein | 155 fein |
| Val | 45 fein | 45 fein | 45 fein |
| Alls til stúdentsprófs | 200 fein | 200 fein | 200 fein |
1) Þetta er heimildaritgerð (stúdentsritgerð), rannsóknarritgerð eða skýrsla um rannsóknarverkefni.
2) Á hugvísindabraut er gert ráð fyrir að nemendur velji á milli þess að taka 15 fein í 4. máli eða 15 fein í menningarlæsi (menningarsaga, listasaga og þess háttar).
Á félagsfræðabraut tækju nemendur 10 fein í tveimur greinum af fjórum (félagsfræði, sögu, sálfræði, uppeldisfræði).
Námsgreinar í 1. bekk
Námsgrein
Félagsvísindabraut
Hugvísindabraut
Náttúruvísindabraut
Íslenska
10 fein
10 fein
10 fein
Stærðfræði
5 fein
5 fein
10 fein
Danska 1)
5 fein
5 fein
5 fein
Enska
10 fein
10 fein
10 fein
Þriðja mál
10 fein
Félagsfræði
6 fein
6 fein
6 fein
Saga
10 fein
5 fein
5 fein
Sálfræði
5 fein
Náttúruvísindi
5 fein
5 fein
Efnafræði
5 fein
Jarðfræði
5 fein
Íþróttir
2 fein
2 fein
2 fein
Lífsleikni
1 fein
1 fein
1 fein
Samtals í kjarna
59 fein
59 fein
59 fein
Val 2)
0-8 fein
0-8 fein
0-8 fein
1) Skólaárið 2009-10 verða 7 fein í dönsku vegna þess að breytingar á námskrá grunnskóla hafa ekki enn tekið að fullu gildi.
2) Tónlistarnám, listdans, myndlist o.fl. getur verið hluti af vali.
Inntökuskilyrði vegna innritunar í júní 2009
Innritað verður á þrjár brautir; félagsvísinda-, hugvísinda- og náttúruvísindabraut.
Miðað verður við eftirfarandi einkunnamörk:
Braut
Skólaeinkunn í íslensku
Skólaeinkunn í ensku
Skólaeinkunn í stærðfræði
Félagsvísindabraut
6,0
6,0
5,0
Hugvísindabraut
6,0
6,0
5,0
Náttúruvísindabraut
6,0
5,0
6,0
Í töflunni eru þær lágmarkseinkunnir sem miðað er við inn á hverja braut.
Reiknað er meðaltal þessara þriggja greina.
Einnig er reiknað meðaltal allra greina á grunnskólaprófi og litið á skólasóknina.
Ef fleiri sækja um en skólinn getur tekið getur viðmiðið orðið hærra en lágmarkið.