31.08.2011
Stuttur fundur með mentorum verður haldinn í hádeginu, fimmtudaginn 1. september n.k. kl. 11.30 í stofu M10.
Mikilvægt að allir mentorar mæti á þennan fund.
Bestu kveðjur - Björk
Nánar18.08.2011
Kvennaskólinn í Reykjavík verður settur mánudaginn 22. ágúst kl. 9:00 í Fríkirkjunni.
Nánar12.08.2011
Vegna mikilla framkvæmda í húsnæði skólans hef ég ákveðið að fresta skólasetningu til mánudagsins 22. ágúst kl. 9. Í næstu viku verður tilkynnt hvar skólasetningin verður.
Eftir skólasetninguna verður dagskrá fyrir nýnema fram að hádegi.
Kennsla í 1.-3. bekk hefst skv. stundaskrá þriðjudaginn 23. ágúst og kennsla í 4. bekk fimmtudaginn 25. ágúst.
Skólameistari
Nánar10.08.2011
Á bókalistanum í íslensku eru m.a. bækurnar Tungutak - Ritun handa framhaldsskólum, Tungutak - Setningafræði handa framhaldsskólum og Tungutak - Málsaga handa framhaldsskólum. Nemendur Kvennaskólans fá afslátt af bókunum kaupi þeir þær allar þrjár í einu hjá Forlaginu, Bræðraborgarstíg 7.
Nánar09.08.2011
Bókalistarnir eru tilbúnir og eru hér á heimasíðunni undir liðnum Námið og einnig í Deiglunni.
Nánar