19.12.2011
Kvennaskólinn í Reykjavík óskar nemendum sínum, starfsfólki og öllum velunnurum skólans gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári!
Kennsla á vorönn hefst samkvæmt stundaskrá fimmtudaginn 5. janúar
Nánar19.12.2011
Þorsteinn Valdimarsson fæddist 1918 í Vopnafirði. Móðir hans var Guðfinna Þorsteinsdóttir skáld, sem birti ljóð sín undir nafninu Erla. Þorsteinn varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1939.
Nánar14.12.2011
Nemendur fá einkunnir afhentar á þriðjudaginn 20. desember kl. 9:00-9:25. Prófsýning verður frá kl. 9:30-10:30. Hér fyrir neðan eru upplýsingar um stofur og staðsetningu
Nánar
12.12.2011
Hann lauk gagnfræðaprófi og stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík. Einnig lagði hann stund á frönskunám í Frakklandi og ítölskunám á Ítalíu. Hann fékkst við margvísleg störf, til dæmis bensínafgreiðslu, píanókennslu og leik í danshljómsveitum, en seinustu árin var hann rithöfundur að atvinnu. Hann var einn af ritstjórum Birtings, tímarits um bókmenntir og listir. Jón Óskar hefur þýtt mikið úr frönsku og skrifað smásögur, skáldsögur, frásagnir og ferðaminningar. Einnig hefur hann gefið út minningar sínar og nokkrar ljóðabækur
Nánar
06.12.2011
Prófin byrja fimmtudaginn 8 desember. Sjúkrapróf verður föstudaginn 16. desember. Einkunnarafhending og prófsýning verður þriðjudaginn 20. desember kl. 9:00.
Nánar
06.12.2011
Kvenskælingar brutu blað þegar þeir fóru á Njáluslóðir síðasta dag nóvembermánaðar. Lagt var af stað frá Aðalbyggingunni í svartamyrkri og fimbulkulda. Kuldinn kom ekki að sök enda langflestir klæddir eftir veðri
Nánar
05.12.2011
Nemendur í barnabókmenntum fengu á föstudaginn 14 börn af leikskólanum Seljaborg í heimsókn til sín. Nemendur sýndu börnunum og lásu fyrir þau myndasögur sem þeir hafa verið að búa til undanfarið. Leikskólakrakkarnir voru ánægðir með sögurnar og í lok heimsóknarinnar fengu allir kakó og piparkökur.
Nánar
05.12.2011
Hrafn Gunnlaugsson er fæddur 1948. Eftir stúdentspróf úr MR 1968 fór hann til náms til Stockhólms í bókmenntum, leikhúsfræðum og kvikmyndagerð.
Nánar
02.12.2011
Árlegir jólatónleikar Kórs Kvennaskólans í Reykjavík verða haldnir laugardaginn 3. desember kl 15:00 í Fríkirkjunni í Reykjavík. Á tónleikunum verða sungin bæði klassísk og óhefðbundin jólalög. Aðgangur inn á tónleikana er ókeypis en jólaleg veitingasala verður eftir tónleikana, sem er jafnframt aðal fjáröflun kórsins. Veitingasalan verður í mötuneytinu í Uppsölum Þingholtstræti 37. Það kostar 500 kr inn í matsalinn og verða léttar veitingar í boði.
Við hvetjum sem flesta til að mæta og hlusta á hugljúfa jólatónlist.
Nánar
01.12.2011
Umhverfisnefnd skólans veitti viðurkenningunni viðtöku í stuttri athöfn sem haldin var í nýjum og fallegum matsal skólans. Auk fulltrúa Landverndar sóttu skólann heim ráðherrar mennta- og umhverfismála. Þær Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, og Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, voru líka komnar í þeim erindagjörðum að undirrita þriggja ára samstarfssamning milli ráðuneyta þeirra um þetta brýna verkefni.
Nánar