18.12.2009
Kvennaskólinn óskar öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári!
Í 1. bekk hefst kennsla á vorönn samkvæmt stundaskrá mánudaginn 4. janúar. Í 2.-4. bekk hefst kennsla samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 6. janúar.
Stundatöflur verða aðgengilegar í Innu nokkru áður, vonandi á milli jóla og nýárs. Sett verður sérstök frétt á heimasíðuna til að tilkynna það, þegar þar að kemur.
Nánar
15.12.2009
Föstudaginn 18. desember kl. 9.00 verður einkunnaafhending í Uppsölum fyrir haustönnina og strax að henni lokinni er prófsýning.
Nánar
07.12.2009
Á dögunum kom Bjarni Thor Kristinsson óperusöngvari og ræddi við nemendur í þýsku 503 á þýsku. Umræðuefnið var „Íslenskur námsmaður í þýskumælandi landi”. Fjallaði Bjarni m.a. um það hvernig þýskunámið í íslenskum framhaldsskóla nýttist honum í námi og starfi. Var heimsókn hans einstaklega ánægjuleg viðbót við þýskunámið.
Nánar