26.09.2008
Söngsalur
Sú hefð hefur skapast í Kvennaskólanum að á Evrópska tungumáladaginn er safnast saman á sal rétt fyrir hádegi og nokkur lög sungin. Í dag var engin undantekning á því og nemendur og kennarar sungu undir styrkri stjórn Gunnars Benediktssonar kórstjóra, Margrétar Helgu Hjartardóttur fyrrverandi kórstjóra og við undirleik Harðar Áskelssonar. Byrjað var á að syngja Það er leikur að læra og síðan var farið í hin ýmsu lög á mismunandi tungumálum, svona í tilefni dagsins. Nánar24.09.2008
Heimsókn frá Sönderborg Statsskole
3. bekkur á tungumálabraut er nú að taka á móti nemendum frá Sønderborg Statsskole. 3T heimsótti Sönderborg á síðasta ári. Í hópnum eru 17 nemendur ásamt tveimur kennurum. Danirnir komu til landsins laugardaginn 20. september og fara heim þann 26. september. Hópurinn hefur skoðað jarðvarmavirkjunina að Nesjavöllum. Einnig Þingvelli, Gullfoss og Geysi. Danirnir hafa einnig heimsótt orkufyrirtæki og áætla að heimsækja Alþingi og Þjóðminjasafnið. Það er óhætt að segja að gestir okkar hafi ekki verið heppnir með veðrið, í ferðum út fyrir Reykjavík hefur blásið og rignt hressilega. Þrátt fyrir það eru allir hæstánægðir með heimsóknina, bæði gestir og gestgjafar. Nánar15.09.2008
Nýnemaferð
Hin árlega ferð nýnema verður farin í vikunni. Venjulega er farið í Þórsmörk en núna eru þar miklir vatnavextir og útlit næstu daga ekki gott þar sem spáð er miklum rigningum. Því verður gist í félagsheimilinu Heimalandi, Vestur-Eyjafjöllum, Hvolsvelli. Smellið hér til að fara á heimasíðu með upplýsingum um staðinn. Nánar14.09.2008
Kynningarfundur fyrir forráðamenn nýnema
Kynningarfundur fyrir forráðamenn nýnema Kvennaskólans í Reykjavík verður haldinn miðvikudaginn 17. september. Fundurinn hefst kl. 20.00 og verður í stofum N2-N4 að Fríkirkjuvegi 9.Á dagskrá er meðal annars: námið við skólann, skólareglur, upplýsingakerfið Inna, þjónusta námsráðgjafa og störf umsjónarkennara. Nánar