30.04.2008
Í morgun var Dimmisjón útskriftarnemenda. Að venju voru þeir klæddir í hina skrautlegustu búninga og komu við í skólanum og kvöddu kennara og aðra nemendur með uppákomu á sal. Í dag verður brugðið á leik í bænum og í kvöld hittast nemendur og kennarar og eiga saman kvöldstund í boði nemenda.
Nánar
30.04.2008
Miðvikudaginn 23. apríl fóru nemendur í 2. bekk ásamt kennurum sínum í ferð á Njáluslóðir. Tilgangurinn var að skoða sögusvið Njálu sem nemendur höfðu verið að lesa. Ferð þessi er árlegur viðburður og heppnast jafnan mjög vel.
Nokkrar myndir úr ferðinni eru komnar á myndasíðu heimasíðunnar.
Nánar
22.04.2008
Í lífsleikni í vetur hafa nemendur fræðst um umhverfið og m.a. verið lögð áhersla á að umgengni okkar skipti máli og hver og einn beri ábyrgð gagnvart eigin umhverfi. Í tengslum við umhverfisfræðsluna munu allir nemendur í 1. bekk taka til hendinni á næstu dögum með því að fara út og hreinsa og snyrta skólalóðirnar og nánasta umhverfi.
Nánar
22.04.2008
Mánudaginn 21. apríl fóru þrír þriðjubekkir með íslenskukennaranum sínum upp að Gljúfrasteini til að skoða hús skáldsins. Kynningin var tvískipt. Meðan hluti hópsins skoðaði húsið og fékk fræðslu um skáldið sjálft, húsið og innbúið fékk hinn hlutinn kynningu um Íslandsklukkuna og Sjálfstætt fólk, bækurnar eftir Laxness sem þau hafa verið að lesa í vetur. Hinir þriðjubekkirnir þrír munu fara að Gljúfrasteini seinna í þessari viku.
Nánar
20.04.2008
Kristín Björg Arnardóttir nemandi í 4.NS hefur verið valin í lið Íslands til að taka þátt í
Ólympíuleikum í eðlisfræði sem fara munu fram í Hanoi í Víetnam í sumar. Kristín tók þátt í eðlisfræði(for)keppni framhaldsskólanna sem var háð s.l. febrúar og náði að komast í 15 manna úrslit, eina stúlkan í þeim hópi.
Hún tók síðan þátt í úrslitakeppninni í mars s.l. og náði að komast í 5 manna lið sem keppa mun fyrir Íslands hönd á fyrrnefndum Ólympíuleikum í eðlisfræði.
Við óskum henni góðs gengis á þeim leikum.
Nánar
17.04.2008
Eins og fram hefur komið frumsýndi Fúría í gærkvöldi leikrit sitt þetta árið,
1001 nótt og var uppselt á frumsýninguna. Frumsýningargestir voru ánægðir með sýninguna og óhætt er að hvetja alla til að tryggja sér miða sem fyrst.
Smellið á
Nánar til að sjá upplýsingar um sýningartíma og miðasölu.
Nánar
16.04.2008
Þriðjudaginn 15. apríl fóru nemendur í sálfræði í heimsókn að Sólheimum í Grímsnesi. Valgeir Backmann tók á móti hópnum, sagði sögu Sólheima og sýndi nemendum svæðið. Á smíðaverkstæðinu tók starfsmaður lagið fyrir hópinn og lék undir á hljóðfæri. Nemendum var einstaklega vel tekið af starfsfólki og heimamönnum.
Nánar
13.04.2008
Miðvikudaginn 16. apríl kl. 20 frumsýnir Fúría
1001 nótt í leikstjórn Margrétar Kaaber.
Aðrar sýningar eru sem hér segir: Föstudaginn 18. apríl kl. 20, laugardaginn 19. apríl kl. 18 og 22, sunnudaginn 20. apríl kl. 20 og mánudaginn 21. apríl kl. 20. Leikritið er sýnt í
Uppsölum (Gamla Versló við Hellusund).
Hægt er að panta miða í síma 867-7738 og 846-2946 allan daginn um helgar og eftir klukkan 17 virka daga. Verð Keðjan 1200, aðrir 1500.
Nánar
12.04.2008
Í gær héldu nemendur á þriðja ári Peysufatadaginn hátíðlegan.
Morguninn hófst á morgunverði á Hallveigarstöðum í boði ungra jafnaðarmanna. Að morgunverði loknum var haldið í Menntamálaráðuneytið þar sem var dansað og sungið fyrir Aðalstein Eiríksson fyrrverandi skólameistara Kvennaskólans og annað starfsfólk ráðuneytisins. Þá var Bessí Jóhannsdóttir formaður skólanefndar Kvennaskólans heimsótt og dansað og sungið fyrir utan heimili hennar. Klukkan ellefu var komið í Kvennaskólann og dansað og sungið fyrir aðra nemendur og starfsfólk skólans.
Nánar
10.04.2008
Á morgun, föstudaginn 11. apríl, halda nemendur í 3. bekk Kvennaskólans sinn árlega peysufatadag. Fyrir þá sem hafa áhuga á að sjá hópinn og jafnvel taka myndir af honum má benda á að hópurinn verður staddur við Kvennaskólann klukkan rúmlega 11 í fyrramálið. Allir velkomnir.
Nánar
07.04.2008
Það gengur mikið á þessa dagana í Uppsölum. Mikil tiltekt hefur átt sér stað undanfarið á sviðinu auk þess sem það hefur verið stækkað. Ástæðan er sú að
Fúría, leikfélag Kvennaskólans frumsýnir leikgerð af sögum úr
1001 nótt þann 16. apríl í Uppsölum. Leikstjóri að þessu sinni er Margrét Kaaber leikkona en þess má til gamans geta að hún er fyrrverandi nemandi Kvennaskólans. Nánar verður sagt frá sýningum
Fúríu þegar nær dregur frumsýningu.
Nánar
05.04.2008
Nokkrir framhaldsskólakórar vinna nú saman að spunaverkefni undir stjórn Gunnars Ben. Vinnan fer þannig fram að kórarnir hittast og semja saman bæði lög og texta, ýmist hver kór fyrir sig eða allir saman. Í verkefninu taka þátt félagar úr Kór Kvennaskólans í Reykjavík, Kór Iðnskólans í Reykjavík, Kór Menntaskólans við Sund og Kór Verslunarskólans. Afrakstur vinnunnar, alls þrjú stutt verk, verður fluttur
laugardaginn 5. apríl kl. 16.00 í Sölvhóli, tónleikasal Listaháskóla Íslands, Sölvhólsgötu 13, 3. hæð. Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.
Nánar
04.04.2008
Þriðjudaginn síðastliðinn hélt nemendafélag Kvennaskólans hina árlegu söngkeppni, Rymju. Keppnin var hörð í ár og úr vöndu að ráða fyrir dómnefndina. Rakel Mjöll í 3T flutti frumsamið lag og lenti í 1. sæti. Auk þess var atriði hennar valið það frumlegasta. Hún verður fulltrúi Kvenskælinga á Söngkeppni framhaldsskólanna sem fram fer á Akureyri laugardaginn 12. apríl. Snædís, Matta og Stella í 4NL fluttu lagið Calling you og lentu í 2. sæti en í 3. sæti lentu Andrés 2NF og Hekla 2T fyrir skemmtilegan flutning á laginu Ladybird.
Nánar
02.04.2008
4.NS fór í heimsókn í Læknagarð s.l. miðvikudag þar sem Logi Jónsson og Björg Þorleifsdóttir tóku á móti þeim og sýndu þeim ýmislegt sem tengist námi í lífeðlisfræði í H.Í. Krakkarnir höfðu bæði gagn og gaman af þessu.
Nánar