27.11.2006
Föstudaginn 24. nóvember fór 3NÞ og NL á Þjóðminjasafnið. Nemendur nutu þess að sjá og upplifa safnið og eiga örugglega oft eftir að gera sér ferð þangað.
Á safninu hittu nemendur helsta fræðimann fatlaðra í Bretlandi Dr. Tom Shakespeare sem gaf sig á tal við nemendur
Nánar
22.11.2006
Nemendur 1 – T fóru í dag í sögutímanum á sýninguna 871 ± 2.
Á sýningunni er fjallað um landnám í Reykjavík og byggt er á fornleifarannsóknum sem fram hafa farið í miðbænum. Miðpunktur sýningarinnar er skálarúst frá 10. öld, sem fannst þegar grafið var fyrir nýju húsi á horni Aðalstrætis og Túngötu.
Nánar
06.11.2006
Kór Kvennaskólans í Reykjavík var í æfingabúðum í Skálholti dagana 3.-5. nóvember. 26 kórfélagar tóku þátt í ferðinni og var æft af krafti. Hópurinn æfði mest í svokölluðum Sumarbúðum Skálholts en liður í æfingunum var gönguferð yfir í Skálholtskirkju þar sem kórinn söng fjölmörg lög í frábærum hljómburði kirkjunnar.
Nánar
04.11.2006
Þriðjudaginn 31. okt. fóru fyrstaársnemendur á náttúrufræðabraut í ferð um Þingvelli, Grafning og niður að sjó við Ölfusárósa. Ferðin tengdist námi í áfanganum Nátt 113 sem fjallar einkum um jarðfræði. Hvergi í heiminum eru eins góðar aðstæður og hér til að skoða flekaskil á þurru landi
Nánar
02.11.2006
Í dag er Epladagur í Kvennaskólanum í Reykjavík. Nemendafélagið býður öllum upp á epli í tilefni dagsins og nemendur gera sér glaðan dag. Kennslu lýkur kl. 13.00. Bekkirnir fara saman út að borða og bjóða gjarnan umsjónarkennara sínum með.
Nánar