27.10.2006
Fyrir stuttu komu nemendur og kennarar heim úr velheppnaðri námsferð til Kalmar. Þetta var nemendaskiptaferð og í marslok koma krakkar úr CIS, en svo nefnist menntaskólinn í Kalmar, í heimsókn til okkar. Nemendurnir unnu saman að verkefnum í skólanum
Nánar
18.10.2006
Föstudaginn 20. október hefst haustfrí Kvennaskólans. Nemendur og starfsfólk skólans fá fjögurra daga helgarfrí og hefst kennsla aftur samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 24. október. Vonandi hafa allir það sem best í fríinu og snúa endurnærðir til starfa í næstu viku, tilbúnir í lokasprett annarinnar:)
Nánar
13.10.2006
3NS er nú staddur í viku heimsókn í Kalmar í Svíþjóð ásamt þremur kennurum. Er bekkurinn að vinna samstarfsverkefni með sænskum nemendum sem snýst um orku.
Ýmislegt fleira hefur verid gert en skoða orku og m.a. var leikinn fótbolti áður
en leikur landsliða Íslands og Svíþjóðar fór fram síðast liðinn miðvikudag.
Nánar
05.10.2006
Í síðustu viku fóru nemendur í 1. bekk í Þórsmörk (nánar tiltekið í Bása í Goðalandi). Farið var í tveimur hollum, fyrri hópurinn var frá þriðjudegi til miðvikudags en sá seinni frá miðvikudegi til fimmtudags. Með í för voru kennarar og stjórn nemendafélagsins.
Nánar