17.05.2013
Útskrift stúdenta og skólaslit Kvennaskólans í Reykjavík verða í Hallgrímskirkju föstudaginn 31. maí kl. 13:00.
Einkunnaafhending og prófsýning verður þriðjudaginn 28. maí kl. 9:00.
Æfing fyrir stúdentsefni verður í Hallgrímskirkju eftir prófsýninguna eða kl. 10:30 – mætið stundvíslega
Nánar
14.05.2013
Í gær var úthlutað úr þróunarsjóði námsgagna og erum við í Kvennaskólanum stolt af því að fjórir kennarar við skólann hlutu styrki. Elínborg Ragnarsdóttir og Sólveig Einarsdóttir fengu styrk fyrir Brot úr bókmenntasögu með skáldlegu ívafi, Kristján Guðmundsson fyrir Sálfræði kvikmynda og Þórður Kristinsson fyrir Mannfræði fyrir byrjendur. Óskum við þeim til hamingju með styrkinn og góðs gengis við námsefnisgerðina.
Nánar
13.05.2013
Pétur er fæddur 15. júní 1947 í Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1968 og hélt síðan til náms í Frakklandi. Þaðan lauk hann meistaraprófi í heimspeki (maîstrise) frá Université d´Aix-Marseille árið 1975.
Nánar
10.05.2013
Nú hafið þið öll fengið póst með link á könnun. Í henni er verið að meta ákveðna þætti í þjónustu bókasafns og mötuneytis. Könnunin er liður í mati á skólastarfinu og því mikilvægt að allir taki þátt. Þannig að við sjáum hvað vel er gert og hvað þarf að laga. Það tekur stuttan tíma að svara könnuninni, einungis nokkrar mínútur.
Nánar
08.05.2013
Hjólað í vinnuna hófst í dag miðvikudaginn 8. maí 2013. Þátttakendur eru orðnir á fimmta þúsund þegar átakið hófst.
Nú eru tvö lið komin í gang hjá Kvennaskólanum í Reykjavík sem er ásamt 120 öðrum fyrirtækum í flokki fyrirtækja með 30-69 starfsmenn. Enn er hægt að skrá sig til leiks og má gera ráð fyrir að þátttakendum í Kvennó fjölgi innan tíðar.
Nánar
08.05.2013
Á skólaárinu sem er að ljúka var í boði tveggja eininga efnafræðiáfangi þar sem eldri nemendur undirbjuggu kennslustundir og aðstoðuðu við kennslu í 1. bekk. Var áfanginn hugsaður til upprifjunar og dýpkunar fyrir nemendur sem hyggja á áframhaldandi nám þar sem efnafræðikunnátta er nauðsynleg.
Nánar
07.05.2013
Þann 9.maí (Uppstigningardag) verður opinn dagur í Háskólanum á Bifröst frá 14.00-17.00 þar sem allir geta komið og fengið upplýsingar um námsleiðir og þá aðstöðu sem í boði er í háskólaþorpinu.
Nánar
06.05.2013
Hann lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Austurbæjar 1956 og var við prentnám við Iðnskóla Reykjavíkur til 1959. Síðar fór hann í spænskunám við Háskólann í Barcelona.
Nánar
03.05.2013
Það voru skrautlega klæddir útskriftarnemar sem kvöddu skólann sinn og dimmiteruðu. Eins og sjá má á myndunum ríkti mikil gleði þegar nemendur kvöddu kennara sína, nemendur og starfsfólk skólans með ljóðum, gjöfum og faðmlögum.
Gleðilega dimmissjón Kvenskælingar
Nánar
03.05.2013
Haukur Már Tómasson færði bókasafninu glæsilegt taflborð sem mun koma að góðum notum fyrir nemendur Kvennaskólans. Ingibjörg skólameistari og Auður bókasafns-og upplýsingarfræðingur tóku við taflborðinu á bókasafni skólans.
Nánar
02.05.2013
Nú eru kosningar fyrir stjórn Keðjunnar afstaðnar og nýir nemendur teknir við í stjórn og miðstjórn.
Nánar
02.05.2013
Dimmission hjá Kvennaskólanum í Reykjavík verður föstudaginn 3. maí. Þá munu útskriftarefnin kveðja kennara sína,starfsfólk skólans og yngri nemendur. Athöfnin hefst kl. 10:30-12:10 og verður í portinu hjá Miðbæjarskóla ef veður leyfir, annars í Uppsölum í mötuneytinu.
Nánar
30.04.2013
Ágætu nemendur.
Búið er að loka fyrir skráningu í sérstofu. Frestur rann út 15. apríl sbr. bréf til allra nemenda og auglýsingu á heimasíðu skólans.
Náms- og starfsráðgjafar
Nánar
30.04.2013
Laus eru til umsóknar eftirtalin störf framhaldsskólakennara við skólann næsta skólaár, 2013-14:
Efnafræði - 50% starf
Jarðfræði - 50% starf
Sálfræði - 25% starf
Stærðfræði - 75% starf
Uppeldis- og tómstundafræði - 75% starf
Nánar30.04.2013
10. ágúst 2013 - Skólasetning og kennsla hefst
18. október – haustfrí
21. október – haustfrí
20. desember – útskrift stúdenta
6. -7. janúar 2014 - endurtökupróf
7. janúar – kennsla hefst á vorönn
30. maí - útskrift stúdenta og skólaslit
2. -3. júní – endurtökupróf
Nánar
29.04.2013
Síðastliðinn föstudag hélt kór Kvennaskólans í tónleikaferð á Sólheima í Grímsnesi. Þar söng kórinn blöndu af nýjum og gömlum popp- og rokklögum við afar góðar undirtektir íbúa og gesta. Sérstaka athygli vakti framkoma og sönggleði kórfélaga.
Kórinn endurtekur leikinn í Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudagskvöldið 30. apríl klukkan 20:00.
Nánar
29.04.2013
Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur skipað nýja skólanefnd fyrir Kvennaskólann.
Nánar
29.04.2013
Dagur var fæddur í Reykjavík 6. ágúst 1937. Hann lauk stúdentsprófi frá MR árið 1960. Dagur varð þekkt ljóðskáld á sjötta áratugnum en eftir hann liggja tólf bækur. Flestar þeirra eru ljóðabækur svo og ljóðaþýðingar. Dagur fékkst einnig við listmálun og hélt nokkrar einkasýningar og tók þátt í samsýningum.
Nánar
26.04.2013
Nemendur í 2H eru nú í nemendaskiptaverkefni, sem styrkt er af Comenius, með nemendum við Sintermeerten skóla í Heerlen sem er sunnarlega í Hollandi. Hollensku nemendurnir munu dvelja á Íslandi í byrjun september og Kvennskælingarnir heimsækja Holland í apríl 2014. Tveir kennarar skólans, Ásdís Arnalds og Þórdís Eyvör Valdimarsdóttir, fóru í undirbúningsheimsókn nú fyrr í mánuðinum þar sem þær m.a. skoðuðu Sintermeerten skólann, funduðu með hollensku kennurunum sem taka þátt í verkefninu og skoðuðu áhugaverða staði til að heimsækja með nemendum næsta vetur
Nánar
22.04.2013
Mánudaginn 22.apríl hefst kosningavika í Kvennaskólanum. Í Uppsölum verða glæsilegir kosningabásar og hafa frambjóðendur hengt upp plaköt í skólabyggingum.
Nánar
19.04.2013
Lifandi bókasafn fór fram í Kvennó föstudaginn 19. apríl og var undirbúið og skipulagt alfarið af nemendum í áfanga sem snýst um svona viðburðarstjórnun. Lifandi bókasafn starfar nákvæmlega eins og venjulegt bókasafn - lesendur koma og fá ,,lánaða" bók í takmarkaðan tíma.
Nánar
19.04.2013
Keppnin verður stærri og með öðru sniði en fyrri ár. Undankeppnin fer fyrst fram á föstudagskvöldinu en þá verður hvorki útvarpað né sjónvarpað frá keppninni. Tólf bestu atriðin keppa síðan á laugardagskvöldinu í beinni útsendingu á RÚV. Aðgöngumiðar í formi armbanda verða seldir hjá nemendafélögum skólanna.
Nánar
19.04.2013
18. apríl var opnuð sýning í Myndlistaskólanum sem fjallar um ferð Voyager eftir segulhraðbrautinni. Voyager var skotið á loft 1977 og er núna á leið sinni til miðgeims (interstellar space). Á sýningunni er hægt að sjá pláneturnar sem Voyager mun heimsækja og einnig gjafir jarðarbúa til lífvera á þeim.
Nánar
18.04.2013
Hinn árlegi viðburður Kvennaskólans, Lifandi bókasafn, fer fram föstudaginn þann 19.apríl næstkomandi á efri hæðinni í Uppsölum frá 10:30 – 12:00.
Nánar
15.04.2013
Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur gefið út kynningarblað um nýju aðalnámskrárnar og er því dreift um allt land. Blaðinu er ætlað að kynna nemendum, foreldrum og öðrum hagsmunaaðilum nýjar áherslur í menntun leikskólabarna, grunn- og framhaldsskólanemenda.
Nánar
15.04.2013
Nemendur með greinda sértæka námserfiðleika eða kvíða þurfa að staðfesta lengri próftíma við námsráðgjafa í síðasta lagi mánudaginn 15. apríl.
Þetta á einnig við þá nemendur sem hafa verið áður í sérstofu !
Nánar
15.04.2013
Dagur er fæddur árið 1986 á Fáskrúðsfirði en hefur búið alla tíð í Reykjavík. Hann stundar meistaranám í íslenskum bókmenntum og ritlist við Háskóla Íslands. Með námi starfar hann á Kleppi. Dagur hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2012 fyrir ljóðabók sína Þar sem vindarnir hvílast og fleiri einlæg ljóð.
Nánar
12.04.2013
Það hefur verið skemmtileg hefð í Kvennaskólanum að allir nemendur skólans fari í leikhús ár hvert. Að þessu sinni varð leiksýningin Ormstunga í Borgarleikhúsinu fyrir valinu. Nemendur skemmtu sér vel á sýningunni þar sem bókmenntaarfurinn og nútíminn fléttast saman á bráðfyndinn og skemmtilegan hátt.
Nánar
10.04.2013
Föstudaginn 12.apríl verður framboðfundur haldinn í Uppsölum á vegum nemendafélagsins Keðjunar. Fundurinn byrjar kl 14:30. Öll framboð sem bjóða fram í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur senda fulltrúa sinn á svæðið og kynna stefnu sína. Að því loknu verður opnað fyrir spurningar úr sal.
Nánar
09.04.2013
Á mánudaginn fóru 2FF og 2NB í dagsferð á Njáluslóðir. Veðrið lék við ferðalanga og hvern sinn fingur svo ekki spillti það ferðagleðinni. Helstir atburða dagsins voru að staðurinn hvar Hjörtur Hámundarson var veginn var heimsóttur, menn riðu húsum að Keldum, vógu hver annan á Sögusetrinu og snæddu sjoppufæði á Hlíðarenda. Ekki þó hinum eina sanna, því hann var á dagskrá eftir hádegi. Þar hlupu menn um grundir og tún.
Nánar
08.04.2013
Ingibjörg lærði kvikmyndastjórn í kvikmyndaskólanum í Moskvu. Eftir það bjó hún á Kúbu og vann þar við leikhússtörf um fimm ára skeið. Eftir heimkomuna hefur hún starfað við blaðamennsku m.a. kvikmyndagagnrýni og þýðingar úr rússnesku og spænsku.
Nánar
04.04.2013
Kosningar til nýrrar stjórnar Keðjunar verða miðvikudaginn 24. apríl. Nú er um að gera fyrir nemendur að huga að framboði. Mörg embætti og störf eru í boði í hinum ýmsu nefndum og ráðum.
Nánar
22.03.2013
Vegna páskaleyfis er Kvennaskólinn í Reykjavík lokaður frá og með mánudeginum 25.mars. Kennsla hefst aftur samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 3. apríl.
Nánar
20.03.2013
Ár hvert er haldin forkeppni fyrir Ólympíuleikana í efnafræði. Í þetta sinn tóku 5 nemendur frá Kvennó þátt og tilkynnum við með stolti að ekki aðeins komust tveir þeirra í undanúrslit , heldur komust þeir báðir áfram alla leið í fjögurra manna ólympíuliðið! Það komust 14 manns í að keppa um sæti í því. Því eiga Ingvar Hjartarson og Pétur Már Gíslason báðir rétt á því að fara til Moskvu að keppa við nemendur hvaðanæva að í efnafræðikunnáttu.
Nánar
19.03.2013
Síðasta sýningin af Drekanum er í kvöld 19. mars og er það er sérstök Mottusýning. Allur ágóði mun renna til Krabbameinsfélagsins.
Nánar
18.03.2013
Limra er enskur bragarháttur sem er fimm braglínur og kom fram á 18. öld. Þorsteinn Valdimarsson skáld kynnti limrur fyrstur á Íslandi. Oftast eru limrur grínvísur og alloft grófar en geta líka verið hvassar samfélagsádeilur, fantasíur og fáránleiki. Hér birtast nokkrar limrur úr Limrubókinni sem Pétur Blöndal tók saman og kom út á síðasta ári.
Nánar
15.03.2013
Kynning á námi í TÖLVULEIKJAHÖNNUN og MARGMIÐLUNARTÆKNI við norskan háskóla verður þann 20. mars kl 11:30 – 12:00 í M19.
Nánar
15.03.2013
Föstudaginn 1. mars hélt hópur nemenda í áfanganum ÞÝS 2L05 í ferð til Berlínar ásamt kennurum áfangans, Björgu Helgu og Elnu Katrínu. Í hópnum voru 20 nemendur í 3. bekk. Nemendur höfðu fyrir ferðina kynnt sér eitt og annað um Berlín og m.a. unnið kynningar um þekktustu staðina.
Nánar
13.03.2013
Fjöldi 10. bekkinga og aðstandenda þeirra komu á opið hús í skólanum þriðjudaginn 12. mars og kynntu sér námsframboð skólans, einstakar kennslugreinar, inntökuskilyrði og félagslíf nemenda. Hér eru nokkrar myndir frá kynningunni.
Nánar
12.03.2013
Kynningarnar á skólanum eru í fjórum kennslustofum á hálf tíma fresti:
Nánar
11.03.2013
Kæru nemendur munið að skiladagur valblaðs fyrir næsta vetur er þriðjudagurinn 12.mars og þeir sem skila inn á réttum tíma verða látnir ganga fyrir í áfanga sem fyllast.
Valblaðinu á að skila á skrifstofu skólans eða til umsjónarkennara.
Nánar
11.03.2013
Hann fæddist á Sauðárkróki og ólst þar upp. Varð stúdent frá MR 1952 og 1955 kom út fyrsta ljóðabók hans. Hann lauk kandidatsprófi íslenskum fræðum frá H.Í. 1959 og starfaði síðan hjá Bókaútgáfu Menningarsjóðs til 1976.
Nánar
07.03.2013
Nú er hinn árlegi Háskóladagur skammt undan en hann verður haldinn laugardaginn 9. mars kl. 12:00-16:00. Að deginum standa allir háskólar landsins sem kynna þar ítarlega nám og starf skólanna. Boðið verður upp á líflega og skemmtilega dagskrá sem verður í Háskólanum í Reykjavík, Háskóla Íslands og í Háskólabíói og mun frír strætisvagn keyra á milli yfir daginn.
Nánar
07.03.2013
Árshátíð Keðjunnar verður haldin í dag fimmtudaginn 7.mars í Gullhömrum
Árshátíðarmynd Kvennó 2013 verður í opinni dagskrá á Skjá-Einum klukkan 11:00 á árshátíðardaginn.
Hefðin er sú að bekkirnir hittast heima hjá einhverjum úr bekknum og fái sér morgunmat á meðan þeir fylgjast með myndbandinu.
Árshátíðarkvöldverður er kl.18:00 í Gullhömrum. Þá snæða nemendur ásamt starfsfólki Kvennaskólans saman.. Ballið byrjar kl 23:00 og er húsinu lokað kl. 00:30. Ballinu lýkur kl. 02:30.
Nánar
07.03.2013
Þriðjudaginn 5. mars var svokallaður góðgerðardagur í Kvennaskólanum. Bekkirnir fengu úthlutað ýmis félög eða samtök sem þau unnu fyrir á þessum skemmtilega degi.
Hér fyrir neðan koma nokkrar myndir og línkar frá deginum.
Nánar
07.03.2013
Kvennaskólinn í Reykjavík keppir við Menntaskólann við Hamrahlíð í Gettu betur laugardaginn 9.mars.
Þetta eru undanúrslit.
Nánar
05.03.2013
Leikverkið sem Fúría frumsýnir þann 10. mars heitir Drekinn og er eftir Évgení Schwartz. Leikgerð og leikstjórn er í höndum Benedikts Karls Gröndal.
Nánar
05.03.2013
Í dag var viðburðarríkur dagur hjá nemendum og kennurum í Kvennaskólanum. Fyrir hádegi kynntu kennarar valáfanga sem verða í boði næsta vetur. Kynningin fór fram í Miðbæjarskóla og greinilega er margt spennandi að velja fyrir nemendur.
Nánar
05.03.2013
Það er farið að útnefna kennara mánaðarins á heimasíðu Kennarasambands Íslands. Þórður Kristinsson, okkar maður, er kennari febrúarmánaðar.
Nánar
05.03.2013
Góðgerðardagur Kvennaskólans er árlegur viðburður skólans til að efla góðgerðarfélög landsins og hjálpa þeim að komast á kortið. Til að undirstrika mikilvægi dagsins er hefbundið skólastarf fellt niður og er skólinn undirlagður af góðgerðarstarfsemi þann dag.
Nánar
04.03.2013
Þriðjudaginn 5. mars verður valkynning fyrir nemendur skólans þar sem kennarar kynna þá valáfanga sem í boði eru næsta vetur. Kynningin fer fram í Miðbæjarskólanum. 1. bekkur mætir kl. 9:15 og 2. og 3. bekkur kl. 10:00.
Nánar
04.03.2013
Miðvikudaginn 6. mars er Tjarnardagur, en þá fellur hið hefðbundna skólastarf niður og boðið er uppá ýmis konar námskeið og fræðslu. Dagurinn byrjar stundvíslega klukkan 8:30 og dagskrá er til 14:30, en hægt er að velja um 3 stutt námskeið sem standa í tvo tíma í senn, 2 hálfsdagsnámskeið eða 1 heilsdagsnámskeið.
Nánar
04.03.2013
Hún er með síðu á Facebook sem hún kallar Ljóða- og textahornið. Þar má finna ljóð og texta eftir Önnu Soffíu. Áður hefur komið út ljóðabók eftir hana sem hún gaf út til styrktar krabbameinssjúkum börnum, en hún missti son sinn úr krabbameini aðeins níu ára gamlan. Anna Soffía segist hafa opnað síðuna til að geta ef til vill veitt öðrum huggun í sorg.
Nánar
28.02.2013
Föstudaginn 1. mars heldur hópur nemenda í Berlínaráfanga í ferð til Berlínar ásamt kennurum áfangans. Í hópnum eru 20 nemendur í 3. bekk. Kennararnir sem eru í ferðinni heita Elna Katrín Jónsdóttir og Björg Helga Sigurðardóttir. Farið verður í skoðunarferðir og nemendur vinna verkefni um Berlín í ferðinni.
Nánar
28.02.2013
Það voru 2 nemendur sem komust í úrslit í Almennu Landskeppninni í efnafræði.
Ingvar Hjartarson í 3NF var í 2.sæti og Pétur Már Gíslason í 3NÞ í 6.sæti.
Nánar
27.02.2013
Á morgun, fimmtudaginn 28. febrúar, heldur hópur tuttugu og átta nemenda til Parísar ásamt tveimur frönskukennurum, þeim Margréti Helgu og Jóhönnu Björk. Ferðin er hluti af svokölluðum Parísaráfanga en í honum snýst allt efni og verkefnavinna um Parísarborg, sögu hennar, daglegt líf, byggingar, markaði, samgöngur o.s.frv.
Nánar
27.02.2013
Þessa dagana skoða nemendur í lífeðlisfræði brjóstholslíffæri út svínum. Þetta þykja flestum áhugaverðir tímar. Meðfylgjandi myndir voru teknar í morgun.
Nánar
26.02.2013
Kæri nemandi. Ef þú átt það til að vera kvíðin(n) fyrir próf, eða í prófi þá er tími til kominn að vinna í málinu. Við erum tilbúnar að aðstoða og ætlum að halda stutt námskeið í stjórnun prófkvíða.
Nánar
25.02.2013
Lið Kvennaskólans í Reykjavík er komið í undanúrslit í Gettu betur. Það var æsispennandi viðureign á milli Kvennaskólans í Reykjavík og Menntaskólans í Kópavogi sem endaði með 21 stigi gegn 19 stigum í 8 liða úrslitum.
Til hamingju elsku Hrafnhildur, Daníel Freyr og Skúli !
Nánar
25.02.2013
Jóhann Sigurjónsson fæddist á Laxamýri í S-Þingeyjarsýslu 19. júní 1880. Laxamýri var stórbýli á þeim tíma og ólst Jóhann upp við góðan aðbúnað yngstur í átta systkinahópi. Eftir nám í Lærða skólanum hélt Jóhann til Kaupmannahafnar árið 1899 til að stunda nám í dýralækningum. Hann hvarf frá því námi og sneri sér alfarið að ritstörfum. Hann einbeitti sér nú að skrifa leikrit en í Lærða skólanum var hann farinn að skrifa töluvert, einkum ljóð. Þekktustu leikrit Jóhanns eru Fjalla-Eyvindur og Galdra-Loftur.
Nánar
21.02.2013
Það eru lið Menntaskólans í Kópavogi og Kvennaskólans í Reykjavík sem etja kappi í næstu viðureign í 8 liða úrslitum Gettu betur. Búast má við hörkuspennandi keppni þegar liðin mætast í beinni útsendingu í myndveri RÚV á föstudagskvöld kl.20:00.
Nánar
21.02.2013
Nemendur í Kvennó eiga þess kost að velja fjölmiðlafræði sem valgrein. Í áfanganum er verið að skoða áhrif fjölmiðla og fræðast um þá ólíku fjölmiðla sem notaðir eru í dag. Liður í náminu er að heimsækja stofnanir og fyrirtæki sem fást við fjölmiðlun á Íslandi. Á dögunum heimsóttu nemendur 365 miðla í Skaftahlíð og fengu leiðsögn um húsið.
Nánar
18.02.2013
Sveinn Snorri Sveinsson er fæddur 28. október 1973. Hann lauk námi frá Grunnskóla Eskifjarðar vorið 1989. Einnig lauk hann 5. stigi í blokkflautuleik frá Tónlistarskóla Fljótsdalshéraðs sama ár. Haustið 1992 sótti Sveinn þriggja mánaða námsskeið í kvikmyndagerð frá Kvikmyndaskóla Íslands.
Nánar
14.02.2013
Kvennaskólanemendur fjölmenntu í Hörpuna til að taka þátt í viðburðinum "dansað til vitundarvakningar" Nemendur jafnt sem kennarar tóku fullan þátt í viðburðinum eins og myndirnar sýna.
Nánar
14.02.2013
Það var Laufey María Jóhannsdóttir sem sigraði í Rymju 2013 í gærkvöldi og mun því verða fulltrúi Kvennaskólans í Söngkeppni framhaldsskólanna 2013. Í öðru sæti var Margrét Braga Geirsdóttir og í þriðja sæti voru Margrét Sól Ragnarsdóttir og Jóhannes Bjarki Bjarkason.
Nánar
11.02.2013
Hún er fædd 12. Janúar 1955 á Ísafirði og ólst þar upp og lauk stúdentsprófi frá MÍ. Elísabet hefur stundað nám við Leiklistarskóla Íslands og numið íslensku við HÍ. Elísabet hefur unnið hin ýmsu störf, við fiskverkun, kennslu, blaðamennsku og ritstjórn.
Nánar
06.02.2013
Degi íslenska táknmálsins verður fagnað í fyrsta sinn mánudaginn 11. febrúar 2013. Í skólum landsins og á vegum annarra stofnana og samtaka verður dagsins minnst með kynningu á íslensku táknmáli.
Nánar
05.02.2013
Rymja, söngvakeppni Kvennaskólans í Reykjavík, verður haldin miðvikudaginn 13. febrúar klukkan 20:00. Í ár verður keppnin haldin í Silfurbergi Hörpu. Bekkjaformenn sjá um miðasölu fyrir nemendur Kvennaskólans.
Nánar
04.02.2013
Guðrún er fædd 18. júní 1944. Hún lauk stúdentsprófi frá MR árið 1964, nam listasögu við háskólann í Lundi 1968-70 og lauk BA prófi í bókasafnsfræði frá HÍ árið 1979. Var forstöðumaður læknisfræðibókasafni Landakotsspítala 1979-1994.
Nánar
01.02.2013
Nemendur í 2NA framkvæmdu svipaða tilraun og Galileo Galilei gerði á sýnum tíma þar sem hreyfing vagns, sem rúllar niður skáborð, er könnuð.
Nánar
29.01.2013
Miðvikudaginn 30. janúar verður stuttmyndin "Fáðu já!" sýnd í grunn- og framhaldsskólum landins. Í myndinni er leitast við að skýra mörkin milli kynlífs og ofbeldis, vega upp á móti áhrifum kláms og klámvæðingar og innræta sjálfsvirðingu og jákvæðni í nánum samskiptum.
Nánar
28.01.2013
Þessar vikurnar er kennsla komin í fullan gang og nemendur glíma við margvísleg verkefni. Í öllum efnafræðiáföngum gera nemendur nokkrar verklegar æfingar sem oft eru skemmtilegar fyrir utan að auka skilning á viðfangefninu.
Nemendur 1.FA byrjuðu mánudaginn á að skoða frumefni, efnablöndur og efnasambönd. Meðal annars hituðu þau saman brennistein og járn. Þessu fylgdi lykt sem ekki fellur öllum í geð.
Nánar
28.01.2013
Hún er fædd 17. apríl 1967 í Reykjavík. Birgitta lauk grunnskólaprófi frá Núpi í Dýrafirði 1983. Sjálfmenntuð í vefhönnun og vefþróun, grafískri hönnun og umbroti. Birgitta er fjöllistakona, rithöfundur, ljóðskáld, þýðandi og myndlistarmaður.
Nánar
23.01.2013
Átta skólar eru komnir áfram í úrslit í sjónvarpi sem hefjast föstudaginn 8. febrúar.
Nánar
22.01.2013
Við minnum á kynninguna á morgun á námskeiði sem undirbýr nemendur fyrir inntökupróf í lækninn og sjúkraþjálfann í Háskóla Íslands.
Kynningin verður í síðasta tíma á morgun kl. 15:40 í stofu N5.
Vonumst til að sjá sem flesta.
Nánar
21.01.2013
Sóveig fæddist í Reykjavík 24. nóvember 1939. Hún var stúdent frá M.R. 1959. Lauk B.A. prófi í dönsku og sögu 1968 frá H.Í. ásamt uppeldisfræði 1970. Sólveig gerðist þá framhaldsskólakennari, fyrst við gagnfræðadeild Vogaskóla og síðan Menntaskólann við Sund til ársins 1990.
Nánar
16.01.2013
Lið Kvennaskólans í Reykjavík sigraði lið Fjölbrautaskóla Suðurlands með 21 stigi gegn 15 og er þar af leiðandi kominn í 8. liða úrslit í sjónvarpi.
Frábær keppni hjá snillingunum okkar í Gettu betur liðinu.
Nánar
15.01.2013
Nýjársball er haldið á Rubin í Öskjuhlíð á miðvikudaginn 16. janúar frá kl. 22:00-01:00.
Leyfi er gefið í 1. tíma á fimmtudagsmorgun 17. janúar.
Nánar
15.01.2013
Miðvikudaginn 23. janúar (í næstu viku) verður inntökupróf.is með kynningu í stofu N5. Þetta fyrirtæki hefur í mörg ár boðið uppá námskeið til að þjálfa fólk í að taka inntökuprófið inn í læknadeild. Kynningin verður í síðasta tíma kl. 15:40
Nánar
15.01.2013
Lið Kvennaskólans í Reykjavík vann lið Menntaskólans á Ísafiði með 14 stigum gegn 8. Dregið var í viðureignir í síðari umferð og mun lið Kvennaskólans í Reykjavík keppa í dag við Fjölbrautaskóla Suðurlands. Keppninni verður útvarpað á Rás 2 kl 19:30 í kvöld.
Nánar
14.01.2013
Guðrún fæddist 19. apríl 1922 í Reykjavík en ólst upp á Vífilsstöðum þar sem faðir hennar starfaði sem læknir. Hún varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík og lauk síðar kennaraprófi og prófi í íslensku og ensku frá Háskóla Íslands. Einnig lauk hún doktorsprófi frá háskólanum í Oxford í Englandi og kom doktorsritgerð hennar þar
Nánar
10.01.2013
Gettu betur er spurningakeppni framhaldsskóla á Íslandi, sem Ríkisútvarpið, RÚV, stendur fyrir árlega. Hver framhaldsskóli á Íslandi getur sent eitt lið í keppnina, sem hvert er skipað þremur nemendum við skólann. Undankeppni fer fram í útvarpi, og að henni lokinni halda átta lið áfram í útsláttarkeppni í Sjónvarpinu.
Nánar
07.01.2013
„Hvað boðar nýárs blessuð sól“? orti Matthías Jochumsson í Nýárssálmi. Fer vel á byrja nýtt ár með þessum sálmi. Matthías fæddist að Skógum í Þorskafirði. Á æskuheimili sínu vandist hann umræðum um trúmál, las mikið og hreifst af nýjum hugmyndum og kenningum þ.á m. „unitarisma“. Hann fór ungur til starfa og náms í Flatey en liðlega tvítugur fór hann til Kaupmannahafnar og dvaldi þar einn vetur.
Nánar
03.01.2013
Kennsla á vorönn hefst samkvæmt stundaskrá mánudaginn 7. Janúar kl. 10:30. Stundatöflur og bókalistar er nú aðgegnileg í Innu .
Nánar
03.01.2013
Nokkur endurtökupróf verða haldin 4. og 7. janúar og hefjast báða dagana kl. 8:30 í stofum N2-N4.
Nemendur þurfa að skrá sig í prófin á þar til gerðum skráningarmiðum.
Nánar
21.12.2012
Föstudaginn 21. desember voru 36 stúdentar útskrifaðir frá Kvennaskólanum við hátíðlega athöfn í Hallgrímskirkju. Kór Kvennaskólans söng og þrír nýstúdentar, Ágústa Björg Kristjánsdóttir, Anna Lilja Björnsdóttir og Birgir Þór Björnsson, fluttu ávörp og þrjár stúdínur, Alda Dís Arnardóttir, Hrönn Guðmundsdóttir og Ingibjörg Hrönn Jónsdóttir glöddu gesti með söng.
Nánar
20.12.2012
Kvennaskólinn í Reykjavík óskar nemendum sínum, starfsfólki og öllum velunnurum skólans gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári!
Kennsla á vorönn hefst samkvæmt stundaskrá mánudaginn 7. Janúar kl. 10:30.
Nánar
20.12.2012
Útskrift stúdenta frá Kvennaskólanum í Reykjavík verða í Hallgrímskirkju föstudaginn 21. desember kl. 13:00. Útskrifaðir verða 36 stúdentar.
Nánar
18.12.2012
Lokaeinkunnir í áföngum sem lýkur á haustönninni má sjá með því að velja Námsferill vinstra megin á síðunni.
Einkunnir (stöðumat) í áföngum sem voru á haustönn en lýkur ekki fyrr en í vor (danska í 1. bekk, efnafræði í 1 N bekkjunum og félagsvísindi í 1BB) má sjá með því að velja Einkunnir vinstra megin á síðunni og velja svo Sundurliðun.
Einkunnaafhending og prófsýning verða á morgun (miðvikudag 19.12) klukkan 9:00
Nánar
17.12.2012
Hann fæddist á Patreksfirði 21. Janúar 1917 og ólst þar upp við kröpp kjör. Hann stundaði nám við Héraðsskólann á Núpi, Námsflokka Reykjavíkur og lýðháskóla í Svíþjóð og Sviss. Jón starfaði sem ritstjóri, fornbókasali og var frumkvöðull að stofnun bókasafns Kópavogs og var fyrsti forstöðumaður þess
Nánar
14.12.2012
Nemendur fá einkunnir afhentar á miðvikudaginn 19. desember kl. 9:00. Í framhaldi af einkunnaafhendingunni er prófsýning.
Hér fyrir neðan eru upplýsingar um stofur og staðsetningu.
Nánar
10.12.2012
Jóhannes (Bjarni Jónasson) var fæddur að Goddastöðum í Dölum en fluttist hálfs árs gamall með fjölskyldu sinni að Ljárskógarseli í sömu sveit. Skáldaheitið Katla tók hann eftir svonefndu svæði við ána Fáskrúð skammt frá Ljárskógarseli
Nánar
05.12.2012
Kvenskælingar fóru glaðir í bragði á Njáluslóðir síðasta dag nóvembermánaðar. Lagt var af stað frá Aðalbyggingunni í hægu og mildu veðri. Á leiðinni austur var fallegt að horfa á dagrenninguna og var orðið vel ratljóst þegar fyrsta áfangastað var náð. Kappklæddir nemendur hlupu að Gunnarssteini þar sem Gunnar á Hlíðarenda og bræður hans börðust við þrjátíu menn.
Nánar
04.12.2012
Meirihluti 4. bekkjar mun nú útskrifast 21. desember. Athöfnin verður í Hallgrímskirkju kl. 13:00. Af því tilefni hittust
4. bekkingar og starfsmenn Kvennaskólans í matsalnum eftir skóla föstudaginn 30. nóvember
Nánar
03.12.2012
Ágústína Jónsdóttir fæddist 4. maí 1949 í Reykjavík. Hún útskrifaðist sem snyrtifræðingur 1968 og leikskólakennari frá Fósturskóla Íslands 1976. Árið 1991 lauk hún B.Ed. prófi frá Kennaraháskóla Íslands.
Nánar
03.12.2012
Nemendur í barnabókmenntum hafa í lok annar verið að skapa eigin myndasögur eða hugmyndir að barnabókum auk þess sem einn nemandi samdi jólalag. Við verkefnagerðina hafa nemendur í huga allt það sem fjallað hefur verið um í áfanganum í tengslum við barnabækur og barnaefni.
Nánar
28.11.2012
Árlegir jólatónleikar Kórs Kvennaskólans í Reykjavík verða haldnir laugardaginn 1. desember kl 14:00 í Fríkirkjunni í Reykjavík. Á tónleikunum verða sungin bæði klassísk og óhefðbundin jólalög. Aðgangur inn á tónleikana er ókeypis en jólaleg veitingasala verður eftir tónleikana og er hún jafnframt aðal fjáröflun kórsins.
Nánar
28.11.2012
Njáluferð 2.bekkjar verður föstudaginn 30, nóvermber. Þeir bekkir sem fara eru 2NA, 2NF,2NÞ, 2FA, 2FÞ og 2H. Nemendur eiga að mæta klukkan 8:00 fyrir utan Aðalbyggingu Kvennaskólans. Það er mætingarskylda. Þeir sem komast ekki, af óviðráðanlegum ástæðum, verða að tilkynna það á skrifstofu skólans og sækja formlega um leyfi. Áætluð heimkoma er milli kl. 15:00 og 16:00
Nánar
26.11.2012
Einar Benediktsson (1864-1940) var fæddur að Elliðavatni, en ólst upp að Héðinshöfða á Tjörnesi frá 9 ára aldri. Hann var sonur Benedikts Sveinssonar sýslumanns og alþingismanns. Varð stúdent frá Lærða skólanum 1884 og lögfræðingur frá Hafnarháskóla 1892.
Nánar
22.11.2012
Í dag 22. nóvember er epladagurinn í Kvennaskólanum haldinn hátíðlegur. Epladagurinn hefur verið haldinn hátíðlegur í Kvennaskólanum í Reykjavík síðan 1921. Ýmsislegt hefur verið sér til gamans gert í skólanum í vikunni og skemmtidagskrá í Uppsölum á epladaginn sjálfan.
Nánar