Kvennaskólinn í Reykjavík

Um áfanga

Áfangi DAN 103 -
Undanfari Enginn
Markmið Að nemendur
  • geti lesið sér til gagns og gamans um efni sem þeir þekkja til og/eða hafa áhuga á
  • geti skrifað samfelldan texta um afmörkuð efni sem þeir þekkja til
  • geti skilið þegar við þá er talað og náð efnisþræði þegar daglegt mál er talað á myndböndum og í kvikmyndum
  • geti tekið þátt í samræðum um daginn og veginn (Sjá nánar í Aðalnámskrá framhaldsskóla, Erlend tungumál, Danska)
  • Námslýsing
    Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur séu færir um að skilja allt venjulegt talað og ritað mál almenns eðlis. Áhersla er lögð á að orðaforði og lesskilningur nemenda aukist, svo og að þeir geti tjáð sig af lipurð munnlega og skriflega. Textar áfangans taka mið af unglingnum og umhverfi hans í víðum skilningi (t.d. skóli, vinir, sumarvinna, heimili og ferðalög). Lesnar eru tvær skáldsögur. Í tengslum við þetta eru nemendur þjálfaðir í framburði og þeir læra að beita algengustu málfræðireglum um nafnorð, lýsingarorð og sagnorð. Nemendur fá þjálfun í að nota hjálpargögn og kennsluforrit í námi sínu. Danmörk og dönsk menning er kynnt.
    Námsmat Skriflegt próf 50% (ólesinn texti 20%, málfræði 20% og þýðing á dönsku 10%), ýmis verkefni 10 %, skáldsögur 20%, munnlegt próf 10% og hlustun 10%.
    Athugasemd Kjarni á öllum brautum
    Kennslugögn
  • Dansk er mange ting, textabók (kaupa nýja bók) eftir Brynhildi A. Ragnarsdóttur og Kirsten Friðriksdóttur, útg. Mál og menning.
  • Danskur málfræðilykill eftir Hrefnu Arnalds, útg. Mál og menning.
  • Klemma, mappa með málfræðiæfingum og textum (fæst eingöngu í skólanum).
  • En-to-tre-NU!, skáldsaga eftir Jesper Sung-Wung.
  • Kjörbækur (nemendur kaupa eina eftirtalinna bóka): Min ven Thomas eftir Kirsten Holst, Hvid sommer eftir Hanne Elizabeth Schultz eða Andrea elsker mig eftir Niels Rohleder.
  • Nemendur þurfa að eiga eða hafa greiðan aðgang að einni eftirtalinna orðabóka: Dönsk-íslensk skólaorðabók frá Máli og menningu, Dönsk-íslensk orðabók frá Ísafold, Nudansk Ordbog frá Politikens Forlag eða Politikens retskrivnings- og betydningsordbog (hentar vel fyrir nemendur með lestrarerfiðleika).
  • Kennarar



    Aukaval



    Leit

    Leitarvél
    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli