Kvennaskólinn í Reykjavík

Um áfanga

Áfangi KYN303 - Kynjafræði
Undanfari FÉL103
Markmið Að nemendur
  • hafi aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
  • að jafnréttismál varða allt samfélagið
  • helstu aðferðum og viðfangsefnum kynjafræðinnar
  • stöðu kynjanna í samfélaginu
  • mismunandi mótun kynjanna út frá menningu, umhverfi og tíma
  • réttindum er varða jafnréttismál
  • staðalmyndum um kvenleika og karlmennsku
  • kynjuðum neysluvenjum
  • klámi og áhrifum þess á kynheilbrigði
  • kynbundnu ofbeldi og mörgum birtingarmyndum þess, svo sem mansali og kynferðislegu ofbeldi
  • áherslu hinseginfræða (e. Queer theory) á marbreytileika hegðunar í stað ríkjandi tvíhyggju
  • skulu hafa öðlast leikni í að:
  • greina stöðu og staðalmyndir kynjanna í fjölmiðlaefni, námsefni og almennri umræðu
  • greina áhrif kynjakerfisins á fjölskylduna og heimilið, skólagöngu, vinnumarkaðinn
  • greina goðsagnir varðandi kynjamun og kynímyndir í samfélaginu
  • afla upplýsinga, greina þær og setja í fræðilegt samhengi
  • skulu geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem þeir hafa aflað sér til að:
  • greina áhrif kynferðis á líf hans og annarra
  • geta tekið þátt í rökræðum um stöðu kynjanna
  • taka virkan þátt í samfélaginu, fjölskyldulífi og atvinnulífi með jafnrétti að leiðarljósi
  • geta metið eigið vinnuframlag og annarra
  • geta sett fram þekkingu sína í ræðu og riti
  • Námslýsing Í áfanganum er staða kynjanna, staðalmyndir og stefna karla og kvenna í samfélaginu skoðuð út frá kenningum félagsvísinda. Jafnréttismál varða alla enda er kynferði eitt af því sem skapar margbreytileika mannlífsins, rétt eins og uppruni, aldur, kynhneigð, stétt og fleiri félagslegir áhrifaþættir. Ætlunin er að skoða hvernig kynhlutverkin skarast á við áðurnefnda þætti. Meðal efnisþátta er klám, mansal, kynhlutverk, sjónvarpsefni og ofbeldi. Eitt af meginmarkmiðum áfangans er að vekja ungt fólk til meðvitundar um réttindi sín hvað varðar jafnréttismál.
    Námsmat Hlutapróf 15%. Ritgerð 20%: Val á viðfangsefni og heimildum er ákveðið í samráði við kennara. Lokaskil á ritgerð 10. desember 2010. Inntaksgreining/skýrsla 15%: Paraverkefni það sem nemendur velja sér annað hvort sjónvarpsefni eða kvikmynd til að greina innihald með tilliti til kynímynda. Dagbókarfærslur/ferilmappa 20% Regluleg skil til kennara). Rannsóknarstofa í kvenna- og kynjafræðum (RIKK) / Þjóðarspegill 10%. Tíma- og heimaverkefni / ástundun 20%.
    Athugasemd
    Kennslugögn
  • Leshefti tekið saman af kennurum. Nánar kynnt í fyrstu kennslustund.
  • Marklund L. og Snickare L. 2006. Það er staður í helvíti fyrir konur sem hjálpa ekki hver annarri (Erna G. Árnadóttir þýddi). Reykjavík: Ari útgáfa. (Til á öllum helstu bókasöfnum).
  • Kyn og jafnrétti: Upplýsingar fyrir ungt fólk (bæklingur). Gefið út af mennta- og menningarmálaráðuneyti og Jafnréttisstofu. (Hægt að nálgast á slóðinni http://www.menntamalaraduneyti.is/media/MRN-pdf/Kynogjafnretti-5_mars2010.pdf)
  • Kennarar
  • Björk Þorgeirsdóttir
  • Þórður Kristinsson


  • Aukaval



    Leit

    Leitarvél
    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli