| Áfangi |
ENS 683 - Afrísk-amerískar bókmenntir |
| Undanfari |
ENS 503/573 |
| Markmið |
Að nemendur
fái ágrip af sögu blökkumanna í Bandaríkjunum kynnist menningu blökkumanna í Bandaríkjunum fyrr og nú með því að lesa bókmenntir þeirra, horfa á heimildamyndir um líf og störf þekktra og óþekktra bandarískra blökkumanna, horfa á kvikmyndaaðlaganir að verkum þeirra, hlusta og rýna í tónlist þeirra, s.s. blues, jazz, soul, pop, raggie og rapgeti gert grein fyrir viðfangsefnum sínum á lipurri og hnökralausri enskugeti kafað dýpra ofan í viðkomandi viðfangsefni og leitað fanga víðar en áðursýni sjálfstæði í vinnubrögðum og geti dregið ályktanir |
| Námslýsing |
Í áfanganum verður saga og menning blökkumanna í Bandaríkjunum skoðuð. Lesin verða bókmenntaverk, skáldsögur, ævisögur og æviágrip, leikrit, smásögur, greinar, ljóð og dægurtextar eftir bandaríska blökkumenn. Í tengslum við lesturinn verður leitast við að rýna í og vinna með heimildamyndir og/eða kvikmyndir um ævi og störf þekktra blökkumanna t.d. Martin Luther King og Malcolm X. Einnig verður horft á kvikmyndaaðlaganir að bókmenntaverkum blökkumanna svo sem The Colour Purple, Mississippi Burning ofl. Auk þess verður rýnt í tónlist blökkumanna til að mynda blues, jazz, soul, pop, raggie og rap. Leitast verður við að hafa sem fjölbreyttast lifandi efni eftir bandaríska blökkumenn í áfanganum. Fengnir verða gestafyririrlesarar til að fjalla um afmarkaða þætti námskeiðsins. Nemendur velja sér einn bandarískan blökkumann eða konu, sem hefur sett mark sitt á réttindabaráttu þeirra og nemendur flytja fyrirlestur um viðkomandi. Einnig velja nemendur sér einn afrísk-amerískan tónlistarmann og flytja fyrirlestur um ævi og tónlist viðkomandi, ásamt því að gefa hlutstendum kost á tóndæmum.
|
| Námsmat |
Áfanginn er próflaus, en nemendur þurfa að skila fjölbreyttum verkefnum bæði munnlega og skriflega yfir önnina og þreyta áfangapróf að lokinni yfirferð einstakra efnisþátta áfangans. 90% mætingarskylda er í áfangann sem gildir 10% af lokaeinkunn. |
| Athugasemd |
Kjörsvið á málabraut; kjörsvið utan brautar á öðrum brautum |
|
|
Áfanginn verður ekki kenndur veturinn 2009-2010 |
| Kennslugögn |
- Black Boy eftir Richard Wright (Vintage).
- Their Eyes Were Watching God eftir Zora Neale.
- Hefti með ítarefni til sölu á skrifstofu skólans.
- Kjörbækur (nemendur lesa eina af þessum bókum):
Sula eftir Toni Morrison, A Lesson Before Dying eftir Ernest J. Gaine eða I Know Why the Caged Bird Sings eftir Maya Angelou.
- Annað námsefni verður tilkynnt síðar.
|
| Kennarar |
|