Kvennaskólinn í Reykjavík

Um áfanga

Áfangi ÍSL 693 - Þýðingar
Undanfari Íslenska 503
Markmið Að nemendur
  • Markmiðið með áfanganum er að nemendur geri sér grein fyrir vandamálum sem þýðendur geta staðið frammi fyrir og fái innsýn í vinnu við þýðingu af öðru tungumáli yfir á sitt eigið tungumál.
  • Námslýsing Nemendur lesa ýmsar greinar sem tengjast þýðingum og spreyta sig á því að þýða ólíkar gerðir af textum. Þýðingar eru bornar saman og leitast er við að efla nemendur í að leggja mat á þær með því að bera saman frummál og málið sem þýtt er á (markmál) og þjálfa þá í að nota þau hugtök sem þar eiga við. Verkefni áfangans felast í kynningu á greinum um þýðingar, hópverkefni þar sem hóparnir þýða stutta barnasmásögu auk þýðinga á ólíkum gerðum texta. Nefna má dæmi um stuttar fréttir, matreiðsluuppskriftir, ljóð o.fl. Verkefnin eru ýmist einstaklings-, para- eða hópverkefni.
    Námsmat Áfanginn er símatsáfangi.
    Athugasemd
    Áfanginn verður ekki kenndur veturinn 2010-2011
    Kennslugögn
  • Ákveðin síðar.
  • Kennarar



    Aukaval



    Leit

    Leitarvél
    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli