Kvennaskólinn í Reykjavík

Um áfanga

Áfangi ÍSL 603 - Málvísindi og hljóðfræði
Undanfari ÍSL 503
Markmið Að nemendur
  • afli sér þekkingar á grundvallarhugtökum hljóðfræðinnar, myndunarstað og myndunarhætti málhljóða í íslensku.
  • lesi úr hljóðritunartáknum og geti hljóðritað texta.
  • geti borið saman framburð íslenskunnar og valinna nágrannamála.
  • þekki íslenskar framburðarmállýskur.
  • kynnist helstu hugmyndum um máltöku barna og tvítyngi; fái innsýn í ýmislegt er varðar tjáskipti manna; kynnist félagslegum mállýskum og glöggvi sig á helstu gerðum talmeina.
  • geri sér grein fyrir vandamálum sem þýðendur geta staðið frammi fyrir og fái innsýn í vinnu við þýðingu af öðru tungumáli yfir á sitt eigið tungumál.
  • æfist í notkun málfræðilegra/fræðilegra hugtaka.
  • Námslýsing Fjallað er um grundvallarhugtök hljóðfræðinnar, myndunarstað og myndunarhátt málhljóða í íslensku, atkvæðaskiptingu, hljóðritun, íslenskar framburðarmállýskur og fleira. Framburður íslenskunnar er borinn saman við framburð erlendra mála og skoðað hvað útlendingar þurfa að hafa í huga þegar þeir læra íslenskan framburð. Sjónum er einnig beint að máltöku barna, tvítyngi, mállýskum og máli mismunandi hópa, tal- og málmeinum og ýmsu er varðar tjáskipti manna. Hugað er að þýðingum og nemendur fá innsýn í ýmislegt sem þýðendur geta staðið frammi fyrir. . Námsmatið felst í fjölbreyttum verkefnum sem unnin eru einstaklingslega og í hópum auk skyndiprófa á önninni. Áfanganum lýkur svo með lokaprófi um haust eða vor.
    Námsmat Verkefnaeinkunn 50%, lokapróf 50%. Nemendur þurfa að ná 4.0 á lokaprófi til þess að verkefnaeinkunn reiknist inn í lokaeinkunn.
    Athugasemd Kjörsvið á félagsfræða- og málabraut; kjörsvið utan brautar á náttúrufræðibraut
    Er kennt á vorönn 2011
    Kennslugögn
  • Tungutak - Hljóðfræði og hljóðkerfisfræði handa framhaldsskólum eftir Ásdísi Arnalds og Sólveigu Einarsdóttur. JPV 2010. 
    Tungutak - Félagsleg málvísindi handa framhaldsskólum eftir Ásdísi Arnalds og Sólveigu Einarsdóttur. JPV 2010. 
    Annað efni afhendir kennari á önninni.  

  • Kennarar
  • Sólveig Einarsdóttir


  • Aukaval



    Leit

    Leitarvél
    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli