Kvennaskólinn í Reykjavík

Um áfanga

Áfangi HAN 103 - Handmennt
Undanfari Enginn
Markmið Að nemendur
  • öðlist þekkingu á vinnuaðferðum handmennta
  • kynnist íslenskum hefðum í textílvinnslu
  • temji sér vönduð og öguð vinnubrögð
  • geti nýtt sér mismunandi hráefni í textílvinnslu
  • nái góðum tökum á vinnuaðferðum við prjón, hekl, útsaum, bútasaum, vélsaum o.fl.
  • kynnist vinnu með textíla og aðstöðu textílhönnuða til sölu og dreifingar á hugverkum sínum
  • Námslýsing
    Kynnt eru tæki og efni sem unnið er með í handmenntum og nemendum er kennt að nota þau við vinnu. Sýnd eru fullunnin verk og myndir við hverja vinnsluaðferð. Nemendur gera prufur  t.d. prjón, hekl, útsaum (bundinn og frjáls), bútasaum, vélsaum, þæfingu o.fl. Þá gera nemendur a.m.k. tvö stærri verkefni í einhverjum ofantalinna verkþátta. Lögð er áhersla á skapandi hugsun í útfærslu og vönduð og sjálfstæð vinnubrögð. Nemendur halda vinnudagbók fyrir hugmyndir, vinnuskissur og vinnulýsingar. Leitast verður við að fara með nemendur á sýningar og í heimsókn á verkstæði textílhönnuða.
    Námsmat
    Símat á vinnuferli nemenda, vinnudagbók, útfærslu hugmynda, verkefnum og endanlegum verkum.
    Athugasemd Val á öllum brautum
    Kennslugögn
  • Verkefni eru valin af kennara og nemendum. Nemendur greiða efnisgjald.
  • Kennarar
  • Erla Elín Hansdóttir


  • Aukaval



    Leit

    Leitarvél
    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli