| Áfangi |
FRA 413 - Frönsk menning í músík og myndum |
| Undanfari |
FRA 303 |
| Markmið |
Að nemendur
fái aukna innsýn í ýmsa þætti menningar Frakklands og annarra frönskumælandi landa með áherslu á sönglög og kvikmyndirþjálfist í að skilja franska sönglagatexta og tal í kvikmyndum og geti tjáð sig um efni þeirra á frönskuþjálfist í heimildaöflun og úrvinnslu heimilda, bæði á frönsku og fleiri tungumálum, um þau viðfangsefni sem koma við sögugeti samið og flutt verkefni og kynningar á frönsku um efni sem tengist áfanganum |
| Námslýsing |
Í þessum áfanga er lögð áhersla á vinnu út frá sönglögum og kvikmyndum á frönsku. Fjallað er um þekkta söngvara og farið í texta nokkurra laga þeirra. Einnig er bæði fjallað um frönskumælandi kvikmyndaleikstjóra og rýnt í dæmi af verkum þeirra, þ.e. ýmist horft á kvikmyndir í fullri lengd, myndbrot eða stuttmyndir. Í því sambandi er farið í orðaforða sem tengist kvikmyndagerð. Töluvert er lagt upp úr hlustun og skilningur á mæltu máli þannig efldur. Lögð er rík áhersla á hópa- eða paravinnu og tjáskipti á frönsku í kennslustundum. Nemendur vinna ýmiss konar verkefni út frá því sem fjallað er um. Til dæmis flytja nemendur kynningar á frönskumælandi listamönnum á sviði dægurlaga. Einnig velja nemendur eina kvikmynd (eða brot úr ýmsum verkum kvikmyndaleikstjóra) sem þeir greina og gagnrýna í litlum hópum og kynna svo fyrir hinum nemendum áfangans. Stefnt er að því að nemendur búi til eigin stuttmynd á frönsku eða vinni sambærilegt verkefni, s.s. munnlega kynningu eða leikrit sem flutt er í kennslustund. |
| Námsmat |
Áfanginn er símatsáfangi. Matið byggir að stórum hluta á virkni og þátttöku í kennslustundum og er því krafist 90% mætingar í áfanganum. Einnig vinna nemendur margvísleg verkefni og geta þurft að þreyta áfangapróf/-kannanir (munnleg eða skrifleg) um einstaka efnisþætti áfangans. |
| Athugasemd |
Kjörsvið á málabraut; kjörsvið utan brautar á öðrum brautum |
|
|
Áfanginn verður ekki kenndur veturinn 2010-2011 |
| Kennslugögn |
Ýmis ljósrit og efni af neti, tónlistarupptökur, kvikmyndir o.fl.
|
| Kennarar |
|