| Áfangi |
DAN 3M05 |
| Nánari lýsing |
Áfanginn er valáfangi. |
| Undanfari |
DAN 2A07 eða DAN 2A05 |
| Lokamarkmið áfanga |
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
sögu kvikmyndagerðar í Danmörkuhelstu stefnum og straumum sem ríkjandi hafa verið í danskri kvikmyndagerðþeim kvikmyndum sem markað hafa tímamót í danskri kvikmyndagerðverkum danskra kvikmyndaleikstjóra sem skarað hafa fram úrdanskri menningu eins og hún birtist í þarlendri kvikmyndaflóruhvernig þjóðarsálin endurspeglast í því sem gert er að umfjöllunarefni í dönskum kvikmyndum og með hvaða hætti kvikmyndagerðarmenn nálgast það |
|
|
Nemandi skal hafa öðlast leikni i að:
skilja danskar kvikmyndir; bæði hvað varðar myndmál og hið talaða málgreina kvikmyndir í samræmi við þau hugtök og verkefni sem unnið er út frá í áfanganumsetja þá kvikmynd, sem verið er að fjalla um, í samhengi við önnur verk viðkomandi leikstjóra og þann samtíma sem myndin er sprottin úr fjalla munnlega um danska menningu og kvikmyndir, án þess að vera bundinn við samfelldan, ritaðan textatengja kvikmynd við danska menningu og setja hana í samhengi við danska kvikmyndasögu flytja mál sitt með skipulögðum hætti á skilmerkilegri dönsku; útskýra og rökstyðja verkefni svo sannfærandi sé |
|
|
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nýta betur þá tungumálakunnáttu sem til staðar er vegna aukinnar þjálfunar og öryggis í munnlegri tjáninguskilja mælt mál í Danmörkuvera virkur þátttakandi í umræðu á danskri tungueiga auðveldara með að aðlaga sig og skilja danskt samfélag sem og hin norrænu samfélöginhafa betri innsýn í danska menningu og þjóðarvitund m.t.t. að stunda nám eða atvinnu þar í landibera skynbragð á hin ýmsu blæbrigði danskrar tungu og menningar og geta borið það saman við önnur samfélög. |
| Námslýsing |
Aðaláherslan í áfanganum er á nýjar kvikmyndir og sjónvarpsþætti og þá markvissu stefnu sem Danir hafa mótað í markaðssetningu og gæðastuðli norrænna kvikmynda. Í byrjun áfangans verður saga kvikmyndaiðnaðarins í Danmörku kynnt í máli og myndum. Fjallað verður um leikstjóra sem skarað hafa fram úr í danskri kvikmyndagerð og einnig um þær kvikmyndir sem valdar hafa verið sem tímamótaverk og samnefnarar fyrir þá strauma og stefnur sem ríkjandi voru á ákveðnum tímabilum. Síðan verða sýndar valdar kvikmyndir, stuttmyndir og sjónvarpsþættir sem varpa ljósi á þróun kvikmyndaframleiðslunnar í Danmörku. |
| Námsmat |
|
| Kennslugögn |
|
| Kennarar |
|